28. maí 2010 klukkan 21:21
Í dag erum við bara búnir að bæta litlum hlutum inn í skólann eins og borð og stólar og þannig. Við erum líka að reyna að gera betra myndband og klára skýrsluna.
Egill Örn Sigurjónsson
27. maí 2010 klukkan 12:51
Í dag erum við að gera myndband. það á að sýna allan skólann. við ætlum að skila því um kl 3 því að þetta tekur aðeins meiri tíma en við héldum.
Egill Örn Sigurjónsson
25. maí 2010 klukkan 23:30
Í dag eru öll þökin tilbúin og allt er til nema hæðin þar sem námsverið er og inngangurinn hjá portinu. Það verður líklega klárað á morgun og þá er allt tilbúið. Ef við höfum tíma ætlum við líka að búa til sum húsgögn eins og matarborðin í salnum og á ganginum og bekkina hjá stofunum. Við erum ennþá að vinna að því hvernig "demo-ið" á að vera en það verður tilbúið á morgun.
Egill Örn Sigurjónsson
21. maí 2010 klukkan 14:22
Við fórum í skólann kl 9:50 en ásta var ekki þá svo við fórum heim að vinna í kortinu. Við erum núna að búa til þakið og gluggana.
Egill Örn Sigurjónsson
20. maí 2010 klukkan 23:02
Núna er hægt að sjá allan skólann og allir veggir eru komnir á sinn stað. Við létum líka nokkra glugga á síðasta hlutann og svalirnar hjá kennarastofunni eru að verða tilbúnar. Salurinn er líka kominn upp og þar er þakið bara eftir. Þegar allt verður komið á sinn stað sem er líklega á sunnudaginn, verður mestur tími eyddur í það að hafa veggina í réttum litum og svoleiðis en þangað til þurfum við bara að búa til þakið og búa til hurðir og tröppur.
Ný mynd er komin í myndaalbúmið.
Egill Örn Sigurjónsson
19. maí 2010 klukkan 23:36
Í dag bjuggum við til alla glugga sem á eftir að þurfa í álmunum og við fundum rétta liti fyrir allt og við erum byrjaðir á salnum. En nú eru allar álmurnar tilbúnar og við getum byrjað að búa til síðasta hlutann. Síðasti hlutinn á líklega eftir að taka lengstan tíma af öllu því að það eru 2 hæðir.
Hér er listi um hvað hver okkar gerir:
Egill Örn og Guðmundur: Láta allt í tölvuna.
Sverrir: Tekur myndir af skólanum og sér um að allt sé rétt
Magnús: Sér um alla liti t.d. á veggjum og svoleiðis og sér til að koma þeim inn í forritið
Egill Örn Sigurjónsson
18. maí 2010 klukkan 22:52
Í dag byrjuðum við á því að fá teikningar af öllum hliðum skólans og þökk sé þeim gátum við lagað alla glugga og bætt inn veggjum. Við bjuggum líka til Réttó merkið og síðan erum við byrjaðir á innganginum sem er hliðina á salnum og þar þurfum við á morgun að setja inn glugga og hurðir. Við bjuggum líka til þak ofan á þriðju álmuna en það er frekar erfitt út af því að þakið er mjög skringilegt í laginu en við náðum að setja það saman og það er mjög líkt því sem á að vera. Við ætlum að setja fleiri myndir inn um leið og álmurnar verða tengdar svo að þá kemur heildarmyndin.
Egill Örn Sigurjónsson
17. maí 2010 klukkan 21:38
Í dag löguðum við það sem var vitlaust t.d. sumir gluggarnir voru of stórir og svoleiðis og svo bættum við við grunnin í einni álmunni.
Egill Örn Sigurjónsson
16. maí 2010 klukkan 00:13
Nýleg mynd,
Egill Örn Sigurjónsson
14. maí 2010 klukkan 13:57
Forritið sem við notum fyrir þetta verkefni heitir valve hammer editor.
Þú getur lesið meira um hammer editor hérna,
http://en.wikipedia.org/wiki/Valve_Hammer_Editor

Hér er mynd af forritinu.